Vorveisla

Fimmtudagur, 13. Maí 2010 - 11:58

 Ísfán boðar til vorveislu fimmtudaginn 13. maí, frá kl. 12:00 - 14:00 á útivistarsvæði við Egá Engsø. Bílastæði eru við Viengevej og er smá spölur frá bílastæði að svæðinu.

Dagskrá:
Hittast, sýna sig og sjá aðra
Snæða nesti
Taka þátt í leikjum
Grilla snobrød

Fólk kemur sjálft með góða skapið, mat og matarföng. Ísfán undirbýr eldstæði þar sem hægt er að skella á grillið og hita snobrød á priki (deig verður að staðnum)

Vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta.

Vinsamlegst fylgist með veðurfréttum og Ísfán síðunni ef aflýsa þyrfti atburðinum vegna veðurs.

Kær kveðja,
Stjórn Ísfán.

Sigrún Þormar
islandsfisk